Krúttmunda mín :)


Gleðileg jól!

Við óskum ykkur gleðilegra jóla, gleði og gæfu á nýju ári! Hafið það gott yfir jólin!

imgp2172.jpg


Við erum á lífi ennþá! :)

Jóhanna Kristín er farin að sofa voða vel, bæði á daginn og nóttunni. Hún á það nú samt til að sofa bara í 6 tíma í einu á daginn og vaka svo nema stund og stund í mömmufangi þar til hún fer að sofa um kvöldið! En það er nú samt ansi gott að sofa í 5-6 tíma í einu og sofa samt vel yfir nóttina! ;)

Aðalheiður Karen er bara ánægð á leikskólanum eins og áður. Hún fékk streptococca um daginn og var á penicillini í rúma viku. Er orðin góð núna :)

Þær systur fengu eins kjóla fyrir jólin og það er búið að taka jólamyndina og láta framkalla og jólakortin fara meira að segja að verða tilbúin bara! :) Jólagjafirnar eru meira og minna tilbúnar, á bara eftir að pakka þeim inn og senda út á land. Það verður gert í næstu viku eða svo.

Við erum annars mest búnar að hanga heimavið og höfum lítið gert af viti :) Við skruppum þó í gær suður með sjó og heimsóttum gamla settið á Klapparstígnum og fórum í afmæli til Guðnýjar Hildar. Það var rosa gaman, þær frænkurnar góðar að leika sér saman og svo skemmdi nú ekki fyrir hvað Hulda Klara býður alltaf upp á eitthvað gott að borða ;)

Við komum líka örstutt við hjá Brynju Dögg og Markúsi... þau voru á leiðinni á tónleika með óperukórnum. Brynja kom svo heim og fór beint upp á spítala til að fæða litlu frænku :D Hún á sama afmælisdag og amma mín Ella, 14. desember :) Til hamingju með það kæra frænka :D

Við ætlum bara að vera heima fjölskyldan um jólin, nennum ekki með skrilljón pakka út á land og heim aftur. Förum í hangikjöt hjá Klapparstígnum á jóladag en verðum annars bara heima. Mamma og pabbi koma svo suður og vonandi Heimir minn líka, og verða yfir áramótin :) Verður bara gaman að hafa þau hér á höfuðborgarsvæðinu! :) Við Dúi eigum líka 5 ára brúðkaupsafmæli á gamlárskvöld og  Dúi á afmæli.. mikið að gerast! :)

Held það sé annars fátt fleira í fréttum í bili :)


Langt síðan síðast...

og mikið búið að ganga á ;)

Það byrjaði á hlaupabólunni. Aðalheiður Karen fékk hana fyrst og var öll útsteypt og alveg vel rúmlega það. Hún svaf voða lítið tvær nætur í röð meðan allar bólurnar voru að springa. Við fórum svo með milljón bólusár í flugvélina til Akureyrar og vorum hjá ma og pa í tæpa viku.

Fyrir norðan heimsóttum við ömmu Ellu og afa Magga. Aðalheiður Karen var varla komin inn fyrir dyrnar þegar hún tilkynnti að hún væri svöng. Amma spurði hvað hún vildi borða og það stóð sko ekki á svarinu! Pönnukökur takk! ;) Það var að sjálfsögðu pönnsukaffi seinnipartinn en fyrir það skruppum við þrjár örstutt í bæinn að redda nokkrum atriðum :) Við fórum auðvitað í strætó, enda er það mjög hagkvæmur og kreppuvænn ferðamáti á Akureyri :)

Við heimsóttum líka ömmu Jóhönnu, sem var bara eiginlega frekar mikið slöpp þegar við komum allar til hennar. Henni versnaði svo meira og meira og fór loks í aðgerð til að varna því að ristillinn í henni springi. Okkur voru ekki gefnar miklar líkur á að hún myndi lifa aðgerðina af, svo það var mjög stressandi síðasta kvöldið og léttirinn var mikill þegar hringingin kom rétt eftir miðnættið og okkur var tilkynnt að aðgerðin hefði gengið framar vonum og amma væri bara ótrúlega hress og sterk kona. Ég heimsótti hana svo morguninn eftir áður en við fórum út á flugvöll. Það var gott að hitta hana, hún var vakandi og sagði bara brandara :) Henni leið bara mjög vel. Núna er hún öll að hressast og er núna að safna kröftum á sjúkrahúsinu á Akureyri ennþá :)

Afi Siggi kom til ma og pa og var hjá þeim megnið af tímanum sem við vorum þar. Það var mjög gott að hafa afa, ekki svo oft sem maður hittir hann :)

Við brugðum okkur líka í heimsókn til Árnýjar og litlu dömunnar hennar. Það var mjög gaman að hitta einhvern utan fjölskyldunnar til að tala við, einhvern með lítið barn eins og ég.. mjög góð heimsókn :)

Við vorum varla komnar til Reykjavíkur aftur þegar Jóhanna Kristín fékk hlaupabóluna. Við fórum á heilsugæsluna mæðgur í vigtun og lengdarmælingu og 3 1/2 árs skoðun. Aðalheiður Karen stóra stelpa er orðin 105cm og 18.5kg og Jóhanna Kristín var greind með hlaupabóluna! Hún var líka lengdar og þyngdarmæld, en við erum búnar að fara aftur síðan svo ég ætla frekar að segja ykkur þær tölur :) 6 vikna er Jóhanna Kristín 5.7kg og 59cm. Hún dafnar semsagt alveg rosalega vel :)

Hlaupabólan tók álíka tíma hjá henni og stóru systur og var alveg álíka útbreidd. Eftir öll veikindin var hún hins vegar gjörsamlega búin að snúa sólarhringnum við og er hún búin að vaka alla nóttina síðustu vikuna eða svo. Núna um helgina erum við svo búin að vera að reyna að snúa henni við og það gengur svona sæmilega. Hún hefur amk sofið aðeins yfir nóttina í rúminu sínu. Kristín Ásta lánaði okkur Draumaland, bókina eftir Örnu Skúladóttur svefnráðgjafa, og ég fór eftir nokkrum leiðbeiningum þar. Vonandi gengur þetta bara vel, svona svo foreldrarnir nái líka aðeins að sofa á nóttunni :D Daman svaf annars í 6 og 1/2 tíma úti í vagni í gær! Hefði ekkert á móti svoleiðis dúr yfir nóttina :) Þetta kemur allt :)

Við erum annars búnar að fá heimsókn frá Þorbjörgu, Brynju Dögg og Söndru Rún og líka frá Ósk og Önnu Haarde :) Mikið gaman að fá fólk í heimsókn :D Áslaug Dís er líka komin til okkar og ætlar held ég að vera hjá okkur :)

Læt þetta duga í bili! :)


Snuð!

Já.. nú er ég hætt að vera snuð fyrir dömuna og búin að sjóða svona alvöru úr siliconi... :)

Daman þyngist einum of vel að mínu mati, þyngdist um 400g milli 6 daga skoðunarinnar og fyrstu hjúkkuheimsóknarinnar (liðu 6 dagar á milli) og í þessari vigtun, viku síðar, er hún búin að þyngjast um 450g! Ég ætla nú svona helst ekki að gera litlu músina mína að bollu svona bara einn, tveir og þrír, svo nú fær hún bara að drekka á 3-4 tíma fresti og fær snuð þess á milli. Hún er alveg að fá feykinóg af mjólk hjá mér og hjúkkan var alveg sammála þessu plani.  Hún er orðin 4800g!

Annars erum við mæðgur þrjár á leiðinni norður í 6 daga í næstu viku :) Planið var að halda upp á 60 ára brúðkaupsafmæli ömmu Jóhönnu og afa Sigga þann 8. nóvember, en amma er komin á spítala, fékk hjartaáfall í gær, svo það er spurning hvernig fer með það! Henni líður samt vel og er alveg stabil og verkjalaus svo vonandi lagast þetta bara. Það er verið að stilla inn lyf hjá henni sem vonandi virka bara vel á hana :) Ég ætla amk að hitta á þau gömlu hjónin í þessari ferð. 

Við Jóhanna Kristín erum annars bara tvær heima á daginn núna, Dúi í vinnu og Aðalheiður Karen í leikskólanum. Ef einhvern langar að koma í heimsókn þá er bara að bjalla og það ætti nú ekki að vera mikið mál!

Þar til síðar! :) 


Jóhanna Kristín

...var skírð hér heima í stofu í gær :)

DSCF5778

Jón Helgi prestur kom og skírði dömuna fyrir okkur. Falleg athöfn og svo var góð veisla á eftir. Daman var hæstánægð með nafnið sitt og svaf vært meðan athöfnin var og á eftir í rúminu sínu. Stóra systir var ekki alveg að gúddera nafnið á litlu systur til að byrja með (enda var hún búin að ákveða að litla systir ætti að heita Karen Sigga) en það lagaðist þó þegar leið á daginn og núna er hún alveg sátt við það :) Nöfnin hennar koma frá ömmu minni Jóhönnu og Kristni afa hans Dúa. Þegar við vorum búin að ákveða að skíra hana Jóhanna fannst okkur vanta eitthvað með. Veltum þessu aðeins fyrir okkur og datt svo í hug Kristín og fannst það fallegt saman. Þá mundum við eftir því að afi hans Dúa hét Jóhann Kristinn, svo við eiginlega slógum tvær flugur í einu höggi. Annars liggur við að önnur hver manneskja í kringum okkur heiti Jóhann/Jóhannes/Jóhanna eða Kristinn/Kristín, en þetta voru þær manneskjur sem við höfðum í huga þegar við völdum nafnið :)

Annars er bara allt gott að frétta af okkur. Mamma er búin að vera ómetanleg hjálp hérna þessa síðustu vikuna en nú þarf hún að fara heim í dag Crying Við eigum sko eftir að sakna hennar mikið mæðgur. Aðalheiður Karen sagði í gær að hún yrði mjög leið þegar amma færi og músin móðir hennar á sko líka eftir verða leið þegar amma fer heim Halo Við förum samt bráðum norður því amma Jóhanna og afi Siggi eiga 60 ára brúðkaupsafmæli þann 6. nóvember og til stendur að fjölskyldan hittist á Akureyri til að halda upp á herlegheitin þann 8. nóvember. Tengdamamma verður samt í bænum næstu 2 vikurnar eða svo þannig að við verðum ekki alveg ein heima :)

Takk allir fyrir frábæran dag í gær! 


Bumbubúinn kominn! :)

IMGP1244

 

Lítil prinsessa kom í heiminn kl. 01:43 í nótt, svona líka slétt og fín og öll hvít af fósturfitu :) Hún var 4095g (16.5 merkur) og 53cm við fæðingu :)

Aðalheiður Karen er ekkert smá stolt stórasystir og mjög hjálpsöm, amk enn sem komið er ;)

Öllum heilsast vel og nú er planið að hvíla sig smá :) 


Ný bumbumynd...

Fyrir þá sem voru að kvarta... :P Er enn að stækka, eða amk enn að slitna, þó svo að ég hafi photoshoppað yfir það enn og aftur ;) Þið viljið ekkert sjá þau! :)

bumba39


Vika eftir...

Heimferðargallinn er að klárast, ég er búin með minn hluta fyrir löngu, mamma er að klára sinn.. Ég er búin að prjóna svipaðan á dúkkuna hennar Aðalheiðar, svo hún geti líka klætt litla barnið sitt í svona flott föt ;) Allt í þvottavélinni núna nema peysan, mamma þvær hana væntanlega?

Fór líka og keypti mér undirlag í rúmið og bílinn.. svona ef ske kynni að ég missti vatnið hér heima eða svo...

Annars er ekkert að gerast sko.. stöku samdrættir af og til en ekkert til að tala um. Ætli það verði ekki 2 vikur eftir eins og síðast... væri nú samt alveg til í að fara að fæða bara, það er ekkert gaman að fara hálfgrátandi upp í rúm á hverju kvöldi vegna verkja í grindinni... Og brjóstsviðinn stöðugi mætti líka alveg fara að hverfa sko.. Krílið hefur það samt bara gott þarna í hlýjunni.. bröltir og potar í mömmu sína á ótrúlegustu stöðum!

Jæja, set inn bumbumynd bráðum, það á eftir að taka nýja :P

Á meðan fáiði að njóta dúkkufatanna bara ;)


Og hún stækkar og stækkar...

Ég held ég springi bráðum! Maginn minn á næstum ekki til heila húð lengur, þó að sjálfsögðu sjáist það ekki á myndum þar sem til er yndislegt forrit sem heitir PhotoShop þar sem hægt er að laga ýmislegt til og "púðra yfir" misfellur og þess háttar Cool Bumban hefur nú samt ekki verið stækkuð þar! Tounge

bumba37v2d

Já, maður er orðinn ansi Þ-laga...

Í öðrum fréttum er það að segja að ég er komin í veikindafrí fram að fæðingu. Gat ekki setið svona mikið lengur, grindin alveg að gefa sig greyið Frown Fyrir þá sem ekki hafa kynnst grindargliðnun/grindarlosi þá ætla ég bara að segja: BE GLAD, BE VERY GLAD! Þetta er viðbjóður. Ég lagði í að sópa eldhúsgólfið hjá mér, enda var ekki vanþörf á og ég þurfti að leggjast niður eftir það, alveg búin. Eldhúsið mitt er ekki stórt. En nóg um það Smile

Fer í mæðró á morgun. Sem betur fer eru ljósurnar búnar að semja svo það er ekkert verkfall lengur! Vona bara að þetta hafi verið almennilegur samningur og þær hafi ekki þurft að semja eitthvað mikilvægt af sér eins og t.d. kennarar eru frægir fyrir! Ég fæ þó amk að fara í mæðraskoðun amk einu sinni áður en ég fer að fæða Smile

Aðalheiður Karen getur ekki beðið eftir að verða stóra systir. Hún sagði við mig um daginn að hún vildi að litla barnið væri ekki lengur í maganum mínum. Mamman fékk smá fyrir hjartað og spurði hvar litla barnið ætti þá að vera? Og það stóð auðvitað ekki á svarinu... Nú, hérna heima hjá okkur auðvitað! Tounge

Það er allt að verða tilbúið. Heimferðarfötin eru að mestu klár held ég (á eftir að spyrja mömmu hvað hún sé komin langt með peysuna...), fullt fullt af hreinum samfellum og göllum í kommóðu, bílstóllinn tilbúinn, sængin tilbúin úr hreinsun... allt þetta helsta.. :)

Jæja, nú held ég að ég sé alveg búin að sitja nógu lengi í bili.. orðin þreytt. Ætla upp í rúm að lesa eða lúlla Whistling


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband